Ásgerður Búadóttir
1920 – 2014

Sýningarnefnd FÍM fyrir haustsýningu félagsins 1976, að undanskildum formanni félagsins, Leifi Breiðfjörð, sem var fjarverandi. Talið frá vinstri (standandi): Sigurður Örlygsson, Þorbjörg Höskuldsdóttir, Hjörleifur Sigurðsson, Margrét Jóelsdóttir, Sigriður Björnsdóttir. Sitjandi frá vinstri: Ásgerður Búadóttir, Hafsteinn Hallmundsson, Ragnheiður Jónsdóttir og Björg Þorsteinsdóttir. Ljósmyndari: Einar Karlsson. © Þjóðviljinn.
Mynd frá opnun 35 ára afmælissýningar Textílfélagsins 2009 . Frá vinstri Guðrún Marinósdóttir, Hólmfríður Árnadóttir, Ásgerður Búadóttir, Ingibjörg Styrgerður Haraldsdóttir, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Þorbjörg Þórðardóttir og Hulda Jósefsdóttir. © Þorbjörg Þórðardóttir.
Frá einkasýningu Ásgerðar "13 stökur" í Gallerí i8 1995. Edda Jónsdóttir, eigandi Gallerí i8 og Ásgerður. Stökur 5 og 6 í bakgrunni. © Ásgerðarsafn.
Frá opnun sýningar Ásgerðar í Listasafni Íslands 1994. Frá vinstri eru Bera Nordal forstöðumaður Listasafns Íslands, Vigdís Finnbogadóttir forseti, Ásgerður og Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra. Verkið Norðrið er í bakgrunni. © Ásgerðarsafn.
Ásgerður á sýningu sinni í Unuhúsi 1967 við verkið Vefjarhiminn. Ljósmyndari: Ólafur K Magnússon. © Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Sýningarstjórn Haustsýningar FÍM 1977 við eitt verka heiðursgestsins Guðmundar Benediktssonar, sem er lengst til vinstri. Í sýningarnefnd voru (f.v.) Eiríkur Smith (formaður), Ásgerður Búadóttir, Hafsteinn Austmann, Hallsteinn Sigurðsson, Hrólfur Sigurðsson, Sigurður Örlygsson, Sigrún Guðmundsdóttir og Jens Kristleifsson. Varamenn voru Gunnar Örn Gunnarsson, Margrét Jóelsdóttir og Valtýr Pétursson. © Morgunblaðið.
Sýnendurnir sem boðið var að sýna saman á sýningunni Nordisk Textil í Galerie Plaisiren við við Hässelby-höllina í Stokkhólmi 1972. Frá vinstri: Elisabet Hasselberg-Olsson (Svíþjóð), Maija Kolsi-Mäkelä (Finnland), Ásgerður Búadóttir (Ísland), Nanna Hertoft (Danmörk), og Sunnøve Anker Aurdal (Noregur). Verk Ásgeðar, Strengleikur í bakgrunni. © Ásgerðarsafn.
Ásgerður Búadóttir á sýningu Koloristanna í Kaupmannahöfn 1975. Hún situr fyrir framan tvö af verkum sínum; Stengleikur og Rautt regn. © Morgunblaðið.
Haustsýning FÍM 1980. Sýningarnefnd standandi f.v. Gunnar Örn Gunnarsson, Björgvin Sigurgeir Haraldsson, Örn Þorsteinsson, Hringur Jóhannesson, Snorri Sveinn Friðriksson og Jónína Guðnadóttir. Heiðursgestir sýningarinnar sitjandi f.v. Leifur Breiðfjörð, Ásgerður og Þórður Hall. Ljósmyndari: Ólafur K Magnússon. © Morgunblaðið.
Frá opnun vefnaðarsýningarinnar The Scandinavian Touch í New York 1982. Frá vinstri: Vigdis Bjarnadóttir, einkaritari forseta íslands, Ásgerður Búadóttir sem átti verk á sýningunni, Sigriður Thoriacius, Birgir Thoriacius ráðuneytisstjóri og Kristinn Hallsson. © DV.
Sýningarnefnd FÍM 1976: F.v. (standandi): Sigriður Björnsdótir, Ragnheiður Jónsdóttir, Hafsteinn Hallmundsson, Þorbjörg Höskuldsdóttir, Björg Þorsteinsdóttir, Margrét Jóelsdóttir, NN [Baltasar B Samper?], Sigurður Örlygsson. Sitjandi frá vinstri: Ásgerður Búadóttir og Hjörleifur Sigurðsson. Ljósmyndari: Sverrir, Tíminn. © Ljósmyndasafn Íslands.
Íslensku sýnendurnir á norrænu farandsýningunni Borialis 1983-1984 voru Ásgerður Búadóttir, Magnús Tómasson og Gunnar Örn Gunnarsson. © Tíminn.
Við opnum sýningar í anddyri Hallgrímskirkju 2006. Edda Jónsdóttir, Ásgerður og Jóhanna Þórðardóttir. Ís og eldur í bakgrunni. © Ásgerðarsafn.
Við vefstólinn að vefa verkið Eldstákn (ÁB072) í stofunni/vinnustofunni í Karfavoginum 1973. Ljósmyndari: Róbert Ágústsson. © Ljósmyndasafn Íslands.
Við vefstólinn með Þórunni dóttur sinni, í stofunni/vinnustofunni í Karfavoginum 1973. Verkið Eldstákn (ÁB073) í vefstólnum. Ljósmyndari: Róbert Ágústsson. © Ljósmyndasafn Íslands.
Á einkasýningu sinni að Kjarvalsstöðum 1984 við verkið Sjö lífsfletir. Ljósmyndari: NN. © Ljósmyndasafn Íslands.
Við verk sín við kynningu á yfirlitssýningu sinn í Listasafni ASÍ 1981. Ljósmyndari: NN. © Ljósmyndasafn Íslands.
Við uppsetningu sýningar hennar í Listasafni Íslands 1994. Ljósmyndari: NN, Alþýðublaðið. © Ljósmyndasafn Íslands.
Portrettmynd úr myndasafni Alþýðublaðsins. Líklegast tekin á Karfavoginum árið 1981. Ljósmyndari: NN, Alþýðublaðið. © Ljósmyndasafn Íslands.
Við verk sitt Norðrið við uppsetningu þess á einkasýningu í Gallerí Borg 1989. Ljósmyndari: Jim. © Ásgerðarsafn.
Ein af röð mynda úr vinnu/stofunni í Karfavoginum fljótlega eftir að Ásgerður fær stóra vefstólinn 1961-1962. © Ásgerðarsafn.
Ein af röð mynda úr vinnu/stofunni í Karfavoginum fljótlega eftir að Ásgerður fær stóra vefstólinn 1961-1962. © Ásgerðarsafn.
Ein af röð mynda úr vinnu/stofunni í Karfavoginum fljótlega eftir að Ásgerður fær stóra vefstólinn 1961-1962. © Ásgerðarsafn.
Ein af röð mynda úr vinnu/stofunni í Karfavoginum fljótlega eftir að Ásgerður fær stóra vefstólinn 1961-1962. Verkið Þrenning frá 1961 hangir á vegg. © Ásgerðarsafn.
Portrett tekið heima á Karfavogi 22, 1970. Mynd tekin við verkið Vefjarhiminn áður en verkið var selt og sent til Danmerkur 1971. © Ásgerðarsafn.
Fyrir framan Musée Cantonal des Beaux-Arts, Palais de Rumine, Lausanne, þar sem 13e Biennale Internationale de la Tapisserie var haldinn. Ljósmyndari: Björn Th Björnsson. © Ásgerðarsafn.
Ásgerður og Björn Th Björnsson nýgift 1947. © Ásgerðarsafn.
Mynd tekin 1991 við vefstólinn í Karfavogi 22. Vekið Janus í bakgrunni. Ljósmyndari: Einar Falur Ingólfsson. © Morgunblaðið.
Stúdíómynd tekin í kringum 1967. © Ásgerðarsafn.
Ein af röð portrettmynda teknar fyrir bókina Veftir 2009. Ljósmyndari: Einar Falur Ingólfsson. © Ásgerðarsafn, Einar Falur Ingólfsson.
Heima á Karfavogi 22. 1993. Verkið Vegurinn langi, ofið sama ár, sést óljóst í bakgrunni. Ljósmyndari: Leifur Þorsteinsson. © Ásgerðarsafn.
Heima á Karfavogi 22. 1993. Ljósmyndari: Leifur Þorsteinsson. © Ásgerðarsafn.
Á einkasýningu sinni á Listasafni ASÍ 1981 með verkin Eldstákn og Vetrarbraut í bakgrunni. Ljósmyndari: Einar Karlsson. © Ásgerðarsafn, Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Á einkasýningu sinni í Listasafni ASÍ 1981. Ásgerður ræðir við Gunnar Kvaran listfræðing við verkin Eldland og Vonin. Ljósmyndari: Bjarnleifur Bjarnleifsson. © Ásgerðarsafn, Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Við vefstólinn 1981 við að vefa verkið Bláin. © Ásgerðarsafn.
Við vefstólinn 1981 við að vefa verkið Bláin. © Ásgerðarsafn.
Tekin fyrir viðtal í tímaritinu Vikunni. Myndatextinn er "Eftir góðan og ótruflaðan vinnudag er fátt betra en fara að matselda fyrir fólkið sitt.". Ljósmyndari: Vikan. © Ásgerðarsafn.
Stúdíóportrett 1964 með verkið Flagðafeldur í bakgrunni. Ljósmyndari: Ljósmyndastofan ASIS. © Ásgerðarsafn.
Með Benedikt Gunnarssyni við opnun sýningar þeirra í Sýningarsalnum 1958. Hluti af verkinu Vefnaður sést á vegg til vinstri. © Ásgerðarsafn.
Við opnum sýningar í anddyri Hallgrímskirkju 2006. © Ásgerðarsafn.
Við opnum sýningar í anddyri Hallgrímskirkju 2006. Meðal þeirra sem sjást á mynd með Ásgerði eru Edda Jónsdóttir, Jón Reykdal og Búi Baldvinsson, Ís og eldur í bakgrunni. © Ásgerðarsafn.
Mynd tekin við Vatnskot við Þingvallavatn um 1985. Ljósmyndari: Björn Th Björnsson. © Ásgerðarsafn.
Ein af röð portrettmynda teknar fyrir bókina Veftir 2009. Ljósmyndari: Einar Falur Ingólfsson. © Ásgerðarsafn, Einar Falur Ingólfsson.
Ein af röð portrettmynda teknar fyrir bókina Veftir 2009. Ljósmyndari: Einar Falur Ingólfsson. © Ásgerðarsafn, Einar Falur Ingólfsson.
Ein af röð portrettmynda teknar fyrir bókina Veftir 2009. Ljósmyndari: Einar Falur Ingólfsson. © Ásgerðarsafn, Einar Falur Ingólfsson.
Ein af röð portrettmynda teknar fyrir bókina Veftir 2009. Ljósmyndari: Einar Falur Ingólfsson. © Ásgerðarsafn, Einar Falur Ingólfsson.
Við opnun einkasýningar í galleríinu Nýhöfn 1992, við verkið Áróra. © Ásgerðarsafn.
Á einkasýningu sinni í Listasafni ASÍ 1981. Meðal annars má sjá verkin Skarðatungl, Sjö lífsfletir og Venus. © Ásgerðarsafn.
Við verkið Glóð á fyrstu einkasýningu sinni í Karfavogi 22 1962. © Ásgerðarsafn.
Á einkasýningu sinni í Unuhúsi 1967 við verkið Krossfarar. © Ásgerðarsafn.
Frá undirbúningi norræna textílþríæringsins að Kjarvalsstöðum 1977. F.v. Sigrún Sverrisdóttir, Þorbjörg Þórðardóttir, Stefán Halldórsson, Ásgerður og Nanna hertoft. Ragna Róbertsdóttir snýr baki í ljósmyndara. © Ásgerðarsafn.
Við vefstólinn í stofunni/vinnustofunni í Karfavoginum 1973. Verkið Stengleikur á vegg. Ljósmyndari: Róbert Ágústsson. © Ljósmyndasafn Íslands.
Við vefstólinn í Karfavoginum 1982. © Ásgerðarsafn.
Við vefstólinn í Karfavoginum 1982. Líklegast verkið Askur í vefstólnum. © Ásgerðarsafn.
Við vefstólinn í vinnustofunni í Karfavoginum um 1988.. © Ásgerðarsafn.
Passamynd 1971. Ljósmyndari: Ljósmyndastofan ASIS. © Ásgerðarsafn, Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Stúdíóportrett 1964 með verkið Flagðafeldur í bakgrunni. Ljósmyndari: Ljósmyndastofan ASIS. © Ásgerðarsafn, Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Stúdíóportrett 1964 með verkið Flagðafeldur í bakgrunni. Ljósmyndari: Ljósmyndastofan ASIS. © Ásgerðarsafn, Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Á Karfavoginum 1983. Verkið Í klakaböndum í bakgrunni. Ljósmyndari: Vladimir Sichov. © Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Við vefstólinn í stofunni/vinnustofunni í Karfavoginum 1967. Ljósmyndari: Bjarnleifur Bjarnleifsson. © Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Við vefstólinn í stofunni/vinnustofunni í Karfavoginum 1967. Ljósmyndari: Bjarnleifur Bjarnleifsson. © Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Í vinnustofunni í febrúar 1985. Í bakgrunni hanga verkin Upphaf I, Leysing og líklegast Sfinx. Ljósmyndari: Páll Kristjánsson. © Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Ásgerður ræðir við Gunnari Kvaran listfræðing á yfirlitssýningu sinni í Listasafni ASÍ 1981. Verkin Eldland og Vonin í bakgrunni. Ljósmyndari: Bjarnleifur Bjarnleifsson. © Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Á fyrstu eiginlegu yfirlitssýningu sinni í Listasafni ASÍ haustið 1981 með verkið Vonin í bakgrunni. Ljósmyndari: Kristján Örn E. © Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Á fyrstu eiginlegu yfirlitssýningu sinni í Listasafni ASÍ haustið 1981 með ýmis verk í bakgrunni. Ljósmyndari: Bjarnleifur Bjarnleifsson. © Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Við opnun einkasýningar í Listasafni Íslands. Með henni á myndinni eru eiginmaður hennar Björn Th. Björnsson, Árni Björnsson lýtaskurðlæknir og Jóhannes Nordal seðlabankastjóri. Ljósmyndari: VSJ. © Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Heima á Karfavogi 22 í febrúar 1985. Ljósmyndari: Páll Kristjánsson. © Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Á einkasýningu sinni í Bogasalnum 1964. Í bakgrunni sjást verkin Sól í Siena, Dökkt lauf, Flagðafeldur, Krossfarar og Vefnaður II. Ljósmyndari: Vísir. © Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Við verkið Krossfarar á einkasýningu sinni í Bogasalnum 1964. Ljósmyndari: Vísir. © Ljósmyndasafn Reykjavíkur.
Sjálfsmynd. Steinþrykk, 45 x 35 cm, unnið í Kaupmannahöfn 1949. © Ásgerðarsafn.

Um safnið

Velkomin á Ásgerðarsafn. Hér á síðunni má vafra um sali og skoða hágæðamyndir af flestöllum þekktum verkum Ásgerðar Búadóttur, einum helsta frumkvöðli íslenskrar nútíma vefjarlistar. Allar þekktar upplýsingar um verkin eru til staðar, oft myndir af bakhlið, merkingu og jafnvel vinnuteikningum. Einnig eru upplýsingar um sýningar- og eigendasögu verkanna. Hægt er skoða myndir frá fjöldamörgum sýningum, fletta sýningarskrám, og lesa sýningardóma, og aðra umfjöllun um list og sýningar Ásgerðar, skoða viðtöl í sjónvarpi, útvarpi, blöðum og tímaritum, og margt fleira. Ásgerðarsafn er þannig einnig heildarverkaskrá (alþjóðlega nefnd catalogue raisonné) ofinna verka Ásgerðar Búadóttur, þar sem hverju verki hefur verið gefið verknúmer (ÁB001-ÁB203). Í slíkri skrá er eigendasaga (e. provenance) mikilvægur þáttur til að tryggja þekkingu um upphaf og sögu hvers verks fyrir sig. Eigendasögur lengjast með tímanum og slíkar og aðrar upplýsingar frá gestum safnsins eru mjög vel þegnar, þar sem enn stendur yfir leit að nokkrum verkum, sýningarskrám og öðrum upplýsingum tengdum verkum, sýningum og ferli Ásgerðar.

Safnspjall