Stöðugt bætast ljósmyndir á vefinn og er þær nú um 1650 talsins. Margar myndanna koma út myndasafni Ásgerðar, aðrar frá einkaaðilum, oftast núverandi eigendum verka, enn aðrar hafa verið teknar fyrir Ásgerðarsafn af atvinnuljósmyndurum, og enn aðrar hafa verið keyptar af ljósmyndasöfnum.
Hingað til hefur vantað myndatexta við þær myndir sem birtast á vefnum, þar sem fram koma upplýsingar um myndefnið, eiganda myndarinnar og nafn ljósmyndara.
Einn af meginþáttum þeirrar heildaruppfærslu vefsins sem nú er í gangi, styrkt af Myndstefi, er að bæta úr þessu. Nú hefur stórt skref verið stigið þar sem gengið hefur verið frá myndatextum um 700 mynda sem birtast á sýningarhluta vefsins.
Þó einhverjir myndatextar sjást einnig undir myndum á listaverkahluta vefsins, á enn eftir að uppfæra þá með öllum upplýsingum.
Taka má fram að fyrir þær ljósmyndir sem hafa upphaflega birst í dagblöðum og tímaritum, er upphaflegur myndatexti birtur innan gæslappa, en frekari upplýsingum oft bætt við þar á eftir.
Meðfylgjandi mynd sýnir dæmi um mynd af sýningu með meðfylgjandi myndatexta

