Fyrir fyrsta norræna textílþríæringinn 1976-1977 óf Ásgerður tvo stór verk og gaf báðum titilinn Ís og eldur. Eins og meðfylgjandi mynd sýnir er annað verkanna er tvískipt.
Þessi farandsýning var fyrst sett upp Álaborg um sumarið 1976 og fór síðan til Osló á ferð sinni um Norðurlöndin. Þar festu norsk hjón kaup á tvískipta verkinu.
Verkið hefur síðan verið í Noregi fram á þennan dag, fyrst í eigu hjónanna, en eftir skilnað, í eigu konunnar. Undanfarin ár hef ég reynt að ná sambandi við hana en ekki tekist, og því hef ég í raun ekki vitað hvar verkið væri niður komið.
En fyrir skömmu settu börn konunnar sig í samband við íslensk söfn með þeim upplýsingum að þau hefðu nýlega erft verkið eftir mömmu sína. Til að gera langa sögu stutta var verkið verðmetið og sett á uppboð í Noregi, þar sem Listasafn Íslands keypti Ís og eldur – tvískipt, fyrir örfáum dögum síðan. Mjög farsæl og ánægjuleg niðurstaða fyrir alla aðila.
Fleiri myndir og upplýsingar um verkið má vitanlega nálgast á vefsíðunni https://asgerdarsafn.is/listaverk/ab081/

