Þó það komi ekki alltaf beint fram hér í safnspjallinu eða á FB síðu Ásgerðarsafns, þá er stöðugt unnið að uppfærslu vefsins. Meðal annars er stöðugt verið að bæta við ljósmyndum og textaskrám.
Nú eru komnar yfir 1200 ljósmyndir á vefinn, myndir af listaverkum og vinnuteikningum, myndir frá sýningum, auk mynda af Ásgerði við ýmis tækifæri á ferlinum. Margar myndanna koma úr yfirgripsmiklu myndasafni Ásgerðar, en hún lét oft atvinnuljósmyndara taka myndir af verkum sínum. Einnig hafa styrkir frá Myndstefi og Myndlistarsjóði verið nýttar til ljósmyndunar nokkurn fjölda verka, og nýttir til kaupa á ljósmyndum frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur og frá Þjóðminjasafni. Það heldur áfram eftir því sem athyglisverðar myndir finnast.
Nær 1000 textaskrár er núna aðgengilegar á Ásgerðarsafni, tengdar, tengdar verkum, sýningum og ferli hennar. Langflestar greinar koma af vefnum Tímarit.is sem er ótrúleg gullnáma og einstakur vefur á heimsvísu. Mun erfiðara hefur verið að nálgast blaðaumfjöllun í erlendum dagblöðum og tímaritum, en töluvert af slíkum skrám er þó að finna á Ásgerðarsafni. Undir „Umfjallanir“ er textaskrám Ásgerðarsafns skipt í flokka til að auðvelda leit: blaða- og tímaritsgreinar, ritgerðir, bækur og sýningarskrár, en einnig eru þær flokkaðar sem t.d. gagnrýni og viðtöl. Auk textaskráa má einnig horfa á þó nokkur myndskeið/sjónvarpsþætti og hlusta á útvarpsviðtal við Ásgerði og Björn Th.
Hér er nýlega fundin mynd, sem birtist í Alþýðublaðinu 27/10 1994, við uppsetningu yfirlitssýningar hennar á Listasafni Íslands (SÝN083). Verkið Norðrið (ÁB130) sést í bakgrunni.

