Nína, Gerður, Eyborg, Barbara, Aslaug, Ragnheiður, María. Verkið er ofið til minningar um sjö listakonur, sem voru kollegar og vinir ÁB og sem féllu frá langt fyrir aldur fram. Fornöfn þeirra eru ofin í langan borða. Þetta eru: Nína Tryggvadóttir 1913-1968. Deyr 55 ára. Gerður Helgadóttir 1928-1975. Deyr 47 ára. Eyborg Guðmundsdóttir 1924-1977. Deyr 53 ára. Barbara Árnason 1911-1975. Deyr 64 ára. Aslaug á Heygum 1920-1975. Deyr 55 ára. Ragnheiður Jónsdóttir Ream 1917-1977. Deyr 60 ára. María H Ólafsdóttir 1921-1979. Deyr 58 ára. Þegar árið 1979 var Ásgerður farin að vefa verk til minningar um þær sex fyrstnefndu. En þegar hún fréttir af andláti Maríu um mitt sumar 1979, fargar hún því verki og byrjar að hanna nýtt verk með „sjö lífsflötum“. Enda var María jafnaldri Ásgerðar og samskóla henni við Dönsku Konunglegu Listaakademíuna. Ásgerður skrifar í minnisbók: „byrja í feb, lýk því í maí“.
Sjö lífsfletir
Veist þú meira um þetta verk?