Merking verksins veldur ruglingi. Svo virðist sem upphaflega hafi verið skrifað „Ásgerður Búadóttir 1972“ með brúnu bleki. Síðan hefur titlinum „Rautt regn“ og tölunni II einhvern tíma verið bætt við með bláu bleki. Þetta er samt ekki „Rautt regn II“, því það verk var ofið 1974 og má sjá sem ÁB074 . Á elstu myndum er langur miðborði, sem hefur verið styttur á einhverjum tímapunkti.