Eigandi verksins skrifaði mér eftirfarandi 2021: ”Sumarið 1977 (maí-ágúst) starfaði ég sem mælingamaður hjá Landmælingum Íslands. Ég og starfsfélagar mínir unnum myrkranna á milli. Tekjurnar voru eftir því. Óðaverðbólga var mjög í tísku á Íslandi á þessum árum og ekki auðhlaupið að hafa upp á góðum fjárfestingarkostum, enda var það ekki hagfræði af þeim toga sem réð gjörðum mínum. Það var miklu frekar hagfræði fegurðar sem var við stjórnvölinn hjá mér og þrá eftir stöðugleika. Þegar ég virði fyrir mér yndislegt mynd- og vefverk móður þinnar hér í íbúðinni í Berlín fyllist ég gleði og þakklæti yfir því að ég, 19 ára menntskælingur, hafi hitt naglann beint á höfuðið í listrænum skilningi. Verk Ásgerðar er ekki bókfellslegt og samt er að svo rammíslenskt og nútímalegt að fáu er þar við að bæta“.
Af stuðlum
Veist þú meira um þetta verk?