Sýningin var sumarsýning Listvinafélags Hallgrímskirku, þar sem Ásgerður sýndi fjögur verk í forkirkjunni. Má segja að Jón Reykdal hafi verið sýningarstjóri en hann var þá í stjórn Listvinafélags kirkjunnar. Eitt af verkunum á sýningunni var Sjö lífsfletir frá1977. Í viðtali við Ásgeir Ingvarsson í tilefni sýningarinnar (UMF0653) segir hún svo frá „Það verk hefur sérstaka merkingu fyrir mig. Þetta var á kvennaáratugnum þegar miklar listakonur voru áberandi innan FÍM, Félags íslenskra myndlistarmanna. Nína Tryggvadóttir deyr fyrst þeirra, og svo deyja þær bara hver af annarri: Barbara Árnason, Gerður Helgadóttir, Áslaug frá Heygum, Eyborg Guðmundsdóttir, og Ragnheiður Ream. Ég hafði hafist handa við að teikna verk, sex, sem ég kallaði lífsfleti – þá frétti ég að María Ólafsdóttir, sem vann mest úti í Kaupmannahöfn, væri dáin.“ Ásgerður byrjaði á nýju verki, Sjö lífsflötum: „Þetta var svo sorglegt. Þær voru allar á besta aldri og á sínu blómaskeiði þegar þær féllu frá. Þetta var mikil blóðtaka.“