Í frétt Einars Fals Ingólfssonar um sýninguna (UMF0665) má meðal annars lesa „Þræddir þræðir nefnist sýning fjögurra listakvenna, þeirra Ásgerðar Búadóttur, Hildar Hákonardóttur, Guðrúnar Gunnarsdóttur og Hildar Bjarnadóttur“. Inga Jónsdóttir, safnstjóri í Hveragerði og sýningarstjóri Þræddra þráða sagði „Ég valdi á sýninguna fjórar konur, af fjórum kynslóðum, sem nálgast sköpunina á mismunandi hátt. Allar vinna þær þó með þráðinn“. „Ásgerður er frumkvöðull í nútímaveflist hér á landi. Hún lærði myndlist og notar ull og hrosshár til að gera sterkar módernískar myndir. Myndmál hennar er nátengt málaralistinni. Hildur Hákonardóttir leggur áherslu á teikninguna og beitir vefnaðinum sem pólitísku vopni, verk hennar eru nátengd kvennapólitíkinni. Guðrún Gunnarsdóttir notar karllægt efni, vírinn, til að vinna verkin en er samt með sterka tengingu við kvenleg gildi; hún er þannig með öðruvísi nálgun við kvennapólitík og vinnur með minni kvenna. Loks er það Hildur Bjarnadóttir, fjórða kynslóðin, hún vinnur líka með minni kvenna auk þess að velta fyrir sér myndlistinni, og fjallar beinlínis um teikninguna, málverkið og skúlptúrinn. Hún vinnur með undirstöðurnar og beitir „kvenlegum“ aðferðum“. Ljósmyndir frá sýningunni eru vel þegnar.