Eins sorglegt eins og það er hefur þessu verki verið fargað. Verkið var ofið fyrir Norræna Menningarsjóðinn í fundarsal hans í Snaregade 10, Kaupmannahöfn. Það var sýnt fyrir nokkra valda gesti í FÍM salnum og afhent óformlega 7/8 1979. Formleg afending fór síðan fram á aðalfundi Norræna menningarsjóðsins 14/12 1979. Vilborg Hauksdóttir hefur gefið mér eftirfarandi upplýsingar: „Skrifstofur Norrænu ráðherranefndarinnar og Norðurlandaráðs fluttu frá Store Strandstræde til Ved Stranden 18 sumarið 2010. Ég man eftir því að við maðurinn minn Borgþór Arngrímsson vorum að dást að verkinu þegar ég kom til starfa í apríl 2010. Verkið var ekki sett upp á Ved Stranden 18 svo það getur verið að það hafi verið sett í geymslu í kjallara. Í rigningunni miklu í Kaupmannahöfn 2. júlí 2011 varð mikið vatnstjón í Ved Stranden 18. Skrifstofurnar voru lokaðar í margar vikur á eftir og fólk í sótthreinsunarbúningum fór í kjallarann og henti öllu út, skjalasafni NMR, NR og líklega verki móður þinnar“.

Þar sem eldurinn aldrei deyr

ÁB095
1978
Breidd 77 cm og 216 cm, hæð 93 cm og 140 cm
Ómerkt

Veist þú meira um þetta verk?