Mjög greinargóð ábending hefur komið fram um að Anna Sigríður Loftsdóttir hafi verið upphaflegur eigandi verksins, og það verið á heimili heimili hennar að Lokastíg 26. Anna Sigríður (1922-2001) var æskuvinkona Ásgerðar. Hún var dóttir Lofts Guðmundssonar ljósmyndara, en Ásgerður vann nokkur ár á ljósmyndastofu Lofts. Anna Sigríður var gift Ásgeiri Kára Guðjónssyni (1921-2012). Ekki er vitað um afdrif verksing eftir þeirra dag, og ekki hefur tekist að ná til niðja þeirra um upplýsingar. Mynd af verkinu við hliðina á Fiskurinn langi (ÁB015) og Form í haustnótt (ÁB013) bendir til að verkið hafi verið á SÝN008 1968. Í sýningarská eru tvö verk nefnd Vefnaður“: ÁB017 80×38 cm og ÁB018 82×44 cm. Líklega er verkið eitt þessara þó svo stærðin passi ekki nákvæmlega. Allar upplýsingar vel þegnar.
Vefnaður
Veist þú meira um þetta verk?