Aðalsteinn Ingólfsson hefur skrifað „En hið eiginlega upphaf hinnar öguðu en innihaldsríku vefjarlistar sem Ásgerður er þekktust fyrir er þó sýningin sem hún hélt með Benedikt Gunnarsyni“. Þó þetta hafi verið samsýning þeirra tveggja má um leið í raun líta á hana sem fyrstu einkasýningu Ásgerðar því hér sýnir hún í fyrsta skipti nokkurn fjölda verka, tíu talsins, flest ofin 1957-1958. Þrátt fyrir að nokkrar ljósmyndir frá sýningunni hafi fundist, eru enn áhöld um hver sum verkanna í sýningarskránni séu í raun, og væri því mikill fengur af fleiri ljósmyndum frá sýningunni.