Þessi sýning var sú þriðja sem Guðbergur Bergsson setti upp í Gerðarsafni, og hér valdi hann fimm listamenn með tilliti til þess hvernig þeir notuðu birtuna í verkum sínum. Sýningin var þannig þematísk samsýning, en einnig yfirgripsmikil hvað varðar fjölda verka hvers sýnanda. Þannig voru á sýningunni 9 verk eftir Ásgerði, 22 verk eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur, 16 verk eftir Eyborgu Guðmundsdóttur, 14 verk eftir Hring Jóhannesson og 14 verk eftir Vilhjálm Bergsson. Sýningin hlaut góða dóma og Ragna Sigurðardóttir endaði umfjöllun sína (UMF0643) þannig „Sýningin Kyrr birta – heilög birta er fyrst og fremst falleg sýning þar sem ríkir kyrrð og andrúmsloft íhugunar. Hún nýtur sín sérstaklega vel í þessum myrkasta mánuði ársins þegar ljósaskiptin vara daglangt“.