Það sem sýnt var voru meðal annars málverk eftir Svavar Guðnason, Þorvald Skúlason, Kjarval, Júlíönu Sveinsdóttur, Nínu Tryggvadóttur, Snorra Arinbjarnar, Kristínu Jónsdóttur, Jóhannes Jóhannesson, Barböru Árnason og Pétur Friðrik. Þá voru leirmunir frá Funa, silfurmunir eftir Ásmund Bjarnason og Val Fannar. Ennfremur var til sýnis sveinsstykki Ásdísar Thoroddsen, smíðað úr siifri, skreytt með slípaðri kræklingsskel frá Örfirisey. Þá voru nokkrir munir úr kopar, slegnir af Birni Halldórssyni og listvefnaður eftir Júlíönu Sveinsdóttur og Ásgerði Ester. Enn vantar að finna ljósmyndir frá sýningum Listvinasalarins.
Jólasýning
Veist þú meira um þessa sýningu?