Sýningin var kynnt á eftirfarandi hátt: „Á aldarafmæli Ásgerðar Búadóttur gefst tilefni til að horfa sérstaklega til vefnaðar og þráðlistar í íslenskri samtímalist og þess hvernig listamenn hafa notað þráðinn, þennan fjölbreytta efnivið; spunnið hann, litað, ofið og formað eftir öllum kúnstarinnar reglum“. Sýningin hlaut síðar viðurkenningu Myndlistarmiðstöðvar fyrir áhugaverðasta endurliitið 2022 með umsögninni „Viðurkenning fyrir Áhugaverðasta endurlitið 2021 fellur í skaut Listasafns Íslands fyrir Listþræði, yfirgripsmikla sýningu sem spannaði 60 ára tímabil, þ.e. frá 1958 til 2018. Sýnd voru 60 verk 37 myndhöfunda. Áhugavert og fjölbreytt val sýningarstjóranna Dagnýjar Heiðdal og Hörpu Þórsdóttur á textílverkum frá tímabilinu var sérlega fræðandi. Sýningin gaf gestum safnsins góða mynd af þróun listgreinar sem fram á síðari ár var nær eingöngu stunduð af konum og hefur til þessa ekki hlotið þá athygli hér á landi sem hún verðskuldar“. Á sýningunni voru fimm verk Ásgerðar, öll í eigu safnsins. Í umfjöllun sinni (UMF0705) setti Aðalsteinn Ingólfsson samt sem áður ýmis umhugsunarverð spurningarmerki við sýninguna.
Listþræðir
Veist þú meira um þessa sýningu?