Á veggspjaldi sýningarinnar má lesa eftirfarandi „Þrjár meginstoðir voru hafðar í huga við val á verkum: tíminn, bakhjarl safnsins, og mikilvægt framlag kvenna. Hver staður hefur sín sérkenni sem mynda staðaranda og aðgreina einn stað frá öðrum. Júlíus Axelsson skráði með myndmáli byggingar og tíðaranda Borgarness. Gjöf Hallsteins Sveinssonar er meginuppistaða safnkosts Safnahússins. Hver var þessi maður sem eyddi drjúgum tíma af lífsstarfi sínu í að ramma inn myndir fyrir listamenn og fékk oft greitt í verkum sem nú er dýrmætur hluti menningararfs okkar. Svipsterkt andlit Hallsteins varð mörgum listamönnum kveikja til sköpunar. Einnig er áhugavert að velta fyrir sér sérkennum fólks og hvernig samtíminn hefur tilhneigingu til að afmá þau. Hverjar – vísar í valin verk eftir konur og af konum. Safnið á dýrmæt verk eftir íslenskar konur. Hlutverk konunnar sem vinnukona, viskubrunnur, ástmær og tákn sjást á sýningunni í afsteypum Ásmundar bróður Hallsteins. Sýningarstjóri er Helena Guttormsdóttir myndlistamaður og lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands“.

HVAR-HVER-HVERJAR

SÝN117
2019
18/5 – 30/9
Listasafn Borgarness
Safneign

Veist þú meira um þessa sýningu?