Í kynningu segir að „Sýningin Sjónarhorn er ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú. Í sjö álmum Safnahússins við Hverfisgötu eru jafnmörg sjónarhorn sem tengja saman ólík listaverk og áhugaverða muni, þvert á efni og tímabil. Sýningin í Safnahúsinu er samstarfsverkefni höfuðsafna landsins og stofnana sem tengjast sögu hússins. Þær eru Þjóðminjasafn Ísland, Listasafn Íslands, Náttúruminjasafn Íslands, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Þjóðskjalasafn Íslands“. Aðalsteinn Ingólfsson skrifar athyglisverða ádrepu um sýninguna í Tímarit Máls og Menningar (UMF0691) þar sem hann líkir sýningunni við furðusöfn miðalda, „þar sem ægði öllu saman: undarlegum fyrirbærum úr náttúrunni, myndverkum, forngripum, sögulegum minjagripum, jarteiknum, skrautmunum, alþýðulist og fundnum hlutum“.
Sjónarhorn – ferðalag um íslenskan myndheim
Veist þú meira um þessa sýningu?