Með sýningunni var litið til baka á „kvennaáratuginn“ svonefnda, með verkum 27 myndlistarkvenna, auk þess sem sýnd voru sýnishorn af veggspjöldum, sýningarskrám, forsíðum blaða og tímarita og annarra heimilda um gróskuna sem einkenndi tímabilið. Í umsögn sinni um sýninguna skrifar Anna Jóa (UMF0673) meðal annars um Ásgerði „Ásgerður Búadóttir „vefur sig“ inn í hið karllæga, móderníska afstraktmálverk, og skírskotar jafnframt formrænt til kvenlíkamans“. Hún lýkur umföllun sinni með athyglisverðum punkti „… en því miður reynist aðeins lítill hluti verkanna vera í opinberri eigu, sem segir sitt um stöðu kvenna og áframhaldandi baráttu sem fyrir höndum er“.

Með viljann að vopni: Endurlit 1970-1980

SÝN109
2010
4/9 – 7/11
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir
Samsýning

Veist þú meira um þessa sýningu?