Þetta var sumarsýning á munum í eigu safnsins. Í fréttatilkynningu voru ýmsir munir og sýnendur taldir upp (UMF0645) og þar á meðal skrifað „Þrír textílar eru á sýningunni, tveir höklar fyrir kvenpresta eftir Hólmfríði Árnadóttur frá 1970, gjöf frá hönnuðinum, og veggteppi frá 1961 eftir Ásgerði E. Búadóttur, sem sýnt hefur verið á norrænum hönnunarsýningum víða um heim, m.a. á sýningunni „Scandinavian Modern Design“ í Bandaríkjunum 1982. Ásgerður hefur nýverið falið Hönnunarsafninu vörslu þessa teppis“.
Sumarsýning á munum í eigu safnsins
Veist þú meira um þessa sýningu?