Í fréttatilkynningur (UMF639) segir eftirfarandi; „Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra opnaði viðamikla sýningu á vegum Listasafns Íslands í Tretyakov-listasafninu í Moskvu í gær. Heiti hennar er „Andspænis náttúrunni – íslensk myndlist á 20. öld“. Þar má sjá 65 verk eftir 21 listamann, frumkvöðla í myndlistarsögu þjóðarinnar en einnig eftir listamenn sem enn eru starfandi“…“Listamenn sem eiga verk sýningunni eru: Þórarinn B. Þorláksson, Ásgrímur Jónsson, Jón Stefánsson, Jóhannes S. Kjarval, Júlíana Sveinsdóttir, Gunnlaugur Scheving, Jóhann Briem, Jón Engilberts, Svavar Guðnason, Nína Tryggvadóttir, Kristján Davíðsson, Ásgerður Búadóttir, Erró, Sigurður Guðmundsson, Gunnar Örn Gunnarsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Guðrún Einarsdóttir, Georg Guðni Hauksson, Hrafnkell Sigurðsson, Sigurður Árni Sigurðsson og Ólafur Elíasson“. Ljósmyndir frá sýningunni eru vel þegnar.

Andsbænis náttúrunni – íslensk myndlist á 20. öld

SÝN102
2002
22/10 – 1/12
Tretyakov Museum Moscow
Íslensk samsýning erlendis

Veist þú meira um þessa sýningu?