Þetta er ein af að minnsta kosti tveimur sýningum, þar sem the Art Institute of Chicago hefur sýnt verk Ásgerðar, Orion, á yfirlitssýningum safnsins yfir textíllist í safneign sinni. Verk Ásgerðar var gefið AIC árið 1996 af hinni þekktu bandarísku textíllistakonu Nancy Hemenway Whitten Barton og eiginmanni hennar, Robert D Barton. Þau höfðu stofnað „The Textile Arts Foundation“ á ofanverðum áttunda ártugnum, keypt alþjóðlegan listvefnað og sýnt í Bandaríkjunum, meðal annars tvö verk Ásgerðar. Þegar þau lögðu niður stofnunina gáfu þau verkin ýmsum listasöfnum, og Orion var gefið AIC.
The 20th-Century Textile Artist
Veist þú meira um þessa sýningu?