Þessi sýning heiðraði Lúðvíg Guðmundsson á sextugsafmæli hans, en hann var stofnandi og skólastjóri Handíða- og myndlistaskólans. Þetta var mjög yfirgripsmikil samsýning íslenskra myndlistarmanna og tóku um 30 útskrifaðir nemendur auk nokkurra þáverandi nemendur þátt. Engin sýningarskrá hefur fundist og einnig óljóst hve lengi sýningin stóð, en sagt er að sýnd voru olíumálverk, vatnslitamyndir, gouachemyndir, klippmyndir, steinprent, sáldþrykkmyndir, lágmyndir, mosaikmyndir og gluggi, höggmyndir úr járni og vírmyndir, keramik, listvefnaður, útsaumur, tauþrykk, batik, silfursmíði, bókband, leður-, og bast- og tágavina. Nokkrar blaðaljósmyndir hafa fundist, en engin sýnir verk Ásgerðar, og heldir því leit að upplýsingum áfram. Fundnar ljósmyndir sýna m.a. járnskúlptúr Gerðar Helgadóttur, mosaikmydir , brjóstmynd Sigurjóns Ólafssonar af afmælisbarninu og málverk, líklegast eitt eða fleiri eftir Braga Ágústsson.
Afmælissýning Lúðvígs Guðmundssonar
Veist þú meira um þessa sýningu?