Norræna listbandalagið (Nordiska konstförbundet) var stofnað 1945 og stóð fyrir stórum, norrænum samsýningum og var Gautaborgarsýningin 1957 sú áttunda í röðinni. FÍM stóð fyrir íslenska forvalinu og voru 78 verk eftir 19 listamenn send á sýninguna. Þetta voru listmálararnir Jóhannes Kjarval, Gunnlaugur Scheving, Hjörleifur Sigurðsson, Sverrir Haraldsson, Kristján Davíðsson, Karl Kvaran og Snorri Arinbjarnar. Júlíana Sveinsdóttir og Ásgerður Búadóttir sýndu listvefnað, Valtýr Pétursson mósaíkmyndir og Nína Tryggvadóttir steinda glerglugga. Barbara Árnason, Bragi Ásgeirsson, Jón Engilberts og Veturliði Gunnarsson sýndu grafíkverk og höggmyndir voru eftir Jón og Guðmund Benediktssyni, Sigurjón Ólafsson og Ásmund Sveinsson. Þrátt fyrir að verk Ásgerðar eru nafngreind í sýningarskrá, leikur vafi á hvaða verk er um að ræða. Á það sérstaklega um verkið „Grenar“ 98 x 84 cm. Ásgerður sýndi sama verk „Greinar“ á samsýningu með Benedikt Gunnarsyni vorið eftir (SÝN008), en engar ljósmyndir hafa fundist frá þessum sýningum sem sýna verkið.
Nordisk konst 1947-1957
Veist þú meira um þessa sýningu?