Sýningarsalurinn, á horni Hverfisgötu og Ingólfsstrætis var opnaður vorið 1957 með þessari samsýningu. Hugmyndafræðin svipaði mjög til Listvinasalarins, sem var opnaður 1951, sem var sala og kynningarstarfsemi á myndlist og listiðnaði, með sam- og sérsýningum íslenskra listamanna, fyrirlestrum og útgáfu kynningarrita. Á fréttamyndum frá opnuninni sjást tvö verk Ásgerðar ásamt járnskúlptúr efir Gerði Helgadóttur og ýmsir leirmunir. Ekki er vitað hvort fleiri verk eftir Ásgerði voru á sýningunni.
Sýning á myndlist og listiðnaði
Veist þú meira um þessa sýningu?