Ekkert er vitað um þessa litlu sölusýningu til stuðnings Alþýðubandalaginu fyrir kosningarnar 1956, nema þessar tvær fréttaklausur í Þjóðviljanum. Listamennirnir sem gáfu verk voru Ásmundur Sveinsson, Jóhannes Kjarval, Rikarður Jónsson, Snorri Arinbjarnar, Sigurður Sigurðsson, Sigurjón Ólafsson, Barbara Árnason, Ríkarður Jónsson, Ásgerður Ester Búadóttir, Benedikt Gunnarsson, Eggert Guðmundsson, Eirikur Smith, Hafsteinn Austmann, Hrólfur Sigurðsson, Jóhannes Geir, Jóhannes Jóhannesson, Karl Kvaran, Kjartan Guðjónsson, Magnús Árnason, Matthías Sigfússon, Sverrir Haraldsson og ef til vill fleiri. Ljósmyndir frá þessari sýningu væru líklega eini möguleikinn til að fá vitneskju um hvaða verk Ásgerður gaf af þessu tilefni.
Sölusýning Alþýðubandalagsins
Veist þú meira um þessa sýningu?