Þetta er opnunarsýning Listvinasalarins, sem þeir Gunnar Sigurðsson og Björn Th. Björnsson opnuðu í maí 1951 í þeim húsakynnum sem nú er Ásmundarsalur. Ljóst er að hugmyndin hefur verið mjög metnaðarmikil. Þannig var Listvinasalurinn ekki aðeins kynntur sem sölugallerí með málverk, höggmyndir, myndvefnað og keramík eftir einvalalið íslenskra myndlistarmanna, eins og sést vel á boðskortinu, heldur yrðu einnig haldin fræðslukvöld og umræðufundir, viðburðir með tónlist og upplestri skálda, sérsýningar innlendra og erlendra myndlistarmanna, og árlegt listaverkahappdrætti fyrir styrktaraðila. Ekki er vitað hvaða verk voru sýnd og myndu ljósmyndir frá sýningunni geta gefið mikilvægar upplýsingar um einhver upphafsverk Ásgerðar.
Listvinasalurinn
Veist þú meira um þessa sýningu?