Hópurinn Lauganesleir voru þau Gestur Þorgrímsson og Sigrún (Rúna) Guðjónsdóttir, skotski leirlistar- og myndlistarmaðurinn Waistel Cooper og Dolinda Tanner, svissnesk að uppruna og sem vann í keramík og textíl. Gestur og Rúna voru samtíimis Ásgeriði og Birni Th í Kaupmannahöfn og voru nánir vinir. Í sýningarskrá segir: „Frú Ásgerður Ester Búadóttir listmálari hefur þegið boð okkar að sýna hér nokkrar ofnar myndur, sem hún hefur gert á síðastliðnum vetri“. Þarna sýnir Ásgerður myndvefnað í fyrsta skipti. Þrjú verkanna voru ávallt í hennar eigu, pökkuð í maskínupappír og merkt „Fyrstu smá vefnaðir“.