Óþekktur eigandi. Óþekkt verk. Bandaríska textíllistakonan Nancy Hemenway Whitten Barton og eiginmaður hennar, Robert D Barton stofnuðu „The Textile Arts Foundation“ á ofanverðum áttunda ártugnum. Þessi stofnun keypti alþjóðlegan listvefnað og sýndi. Stofnunin keypti tvö verk eftir Ásgerði; Orion (ÁB104, keypt 1984) og Icebound (ÁB148, keypt 1989). Bæði verkin voru á sýningum stofnunarinnar 1990 og 1991 (SÝN074, Washington DC 1990 og SÝN078, Boston 1991). Stofnunin var lögð niður 1996 og verk hennar gefin, m.a. ýmsum listasöfnum. Verkið Orion er nú í Art Institute of Chicago, en ekki er vitað hvað varð um Icebound. Allar upplýsingar eru vel þegnar. Titill verksins bendir til að það svipi til verkanna Í klakaböndum I og II (ÁB120 og ÁB121).

Icebound

ÁB148
1989
Breidd 88 cm, hæð 102 cm
Merking óþekkt

Veist þú meira um þetta verk?