Óþekktur eigandi. Verkið var ofið fyrir Sleipner UK, Ltd, London, sem var fjármálafyrirtæki, stofnað 1985. Sleipner var upphaflega dótturfyrirtæki A/S Nevi, sem var norskt fjármálafyrirtæki. Nevi var keypt af Bergen Bank um 1988. Bergen Bank var síðan keyptur af öðrum banka, og endaði sem Den Norske Bank (DNB) 1988/1989. Breskir starfsmenn Sleipner, m.a. Gregor Short, keyptu fyrirtækið Sleipnir af norsku eigendunum í júní 1990. Gregor segir að það hafi verið í síðasta skipti sem hann sá verkið og telur að norsku eigendurnir hafi haldið því eftir. Listaverkasafn DNB telur um 6000 listaverk, en Andromeda finnst ekki meðal þeirra. Allar upplýsingar um verkið, þar á meðal ljósmyndir eru vel þegnar, en einungis eru til vinnuteikningar.

Andromeda

ÁB141
1988
Breidd 58 og 210 cm, hæð 62 og 112 cm
Merking óþekkt

Veist þú meira um þetta verk?