Ofið fyrir Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Borgþór Arngrímsson segir eftirfarandi frá 2024: „Ég var um langt árabil kennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Árið 1988 var sótt um styrk til Listskreytingasjóðs Ríkisins til kaupa á verki. Við vorum tveir kennarar sem vorum settir í þetta verkefni. Við leituðum til Ásgerðar sem tók að sér að gera verk fyrir skólann. Við komum á heimili þeirra hjóna Ásgerðar og Björns Th. til að ræða málið og hun sýndi okkur ,,uppkast“ að verkinu sem var svo sett upp í nýrri viðbyggingu skólans árið 1989″…“Ég talaði við skólameistara, verkið hangir á góðum stað í skólanum. Hann sagði einhverntíma sem oftar var verið að byggja við og þá lenti verkið í geymslu með ýmsu öðru. Skólameistari hafði sagt húsverði að engu mætti henda nema með sínu samþykki. Dag einn kom húsvörðurinn og spurði hvað ætti að gera við þessar tuskur sem væru í geymslunni. Þetta er listaverk sagði meistari og svo var verkið sett í hreinsun hjá forverði og síðan hengt upp. Hefði getað enda illa!!“. Geisladagur er 13. janúar, dagur heilags Hilariusar.
Geisladagar
Veist þú meira um þetta verk?