Óþekktur eigandi. Verkið var sýnt í Kaupmannahöfn 1984 í sýningarsalnum Nikolaj (SÝN059). Þetta var samsýning með Svavari Guðnasýni og sýningin nefnd „Islansk farvespel“. Þann 22. ágúst birtist forsíðufrétt í Þjóðviljanum um að verkinu Í klakaböndum hafi verið stolið. „Listaverki stolið. Teppi eftir Ásgerði Búadóttur stolið af sýningu í Kaupmannahöfn“. Fram kemur í fréttinni á Ásgerður hafi verið látin vita af þessu daginn áður, þann 21. águst. Þar sem sýningunni átti að ljúka þann 19. ágúst má ætla að listaverkinu hafi verið stolið einhverja allra síðustu dagana sem sýningin stóð, kannski jafnvel síðasta sýningardag. Í viðtalinu segir Ásgerður „að teppið sem stolið var hafi verið 1 x 1,25 metrar að stærð. Það ber heitið „Í klakaböndum“. Spjaldi, við hlið verksins, með upplýsingum um höfundinn og verkið var einnig stolið“. Í fréttinni kemur einnig fram að lögregla hafi verið látin vita og sé að rannsaka málið. Ágiskun forstöðumanns sýningarinnar er að „stranganum hafi verið hent út um glugga á sýningarsalnum“. Ef sú ágiskun er rétt mætti ætla að minnska kosti tvær manneskjur hafi komið að stuldinum. Verkið hefur aldrei fundist og allar upplýsingar um málið því vel þegnar. Ath. Eftir stuldinn óf ÁB annað verk (ÁB121; Í klakaböndum II) eftir sömu teikningu.
Í klakaböndum
Veist þú meira um þetta verk?