Verkin Askur og Embla voru ofin fyrir Mosfellsútibú verslunarbankans. Þeir sem komu að pöntuninni voru Kristján Oddson bankastjóri, Björgúlfur Bachmann útibússtjóri og Gunnar Magnússon arkitekt. Verkin eru hluti af listaverkasafni Íslandsbanka sem hefur verið afhentur Listasafni Íslands. Skráð í safneign þess sem LÍ 11842.