Eigandi verksins skrifar eftirfarandi: „Ég var í mörg ár búin að vera mikill aðdáandi móður þinnar. Var heppin að vera í bænum þegar hún opnaði sölusýningu í sal hjá Listasafni alþýðu 1981. Allt svo fallegt en mér varð starsýnt á þessa lítlu mynd. Ég hafði fengið útborgað þennan dag og mánaðarlaunin mín dugðu akkúrat fyrir myndinni. Ég ákvað mig á staðnum og keypti myndina. Ég var himinlifandi að hafa eignast mynd eftir mömmu þína. Á þessum árum var ég einhleyp, bjó í leiguhúsnæði og var tiltölulega nýlega komin úr námi. Mínir nánustu voru ekki alveg sammála forgangsröðuninni minni en í mínum huga var þetta eina rétta“.

Heimkynni í sjó

ÁB109
1981
Breidd 59 cm, hæð 57 cm
Ull, kúskel, þang, kræklingur
Merkt

Veist þú meira um þetta verk?