Af þeim 202 verkum Ásgerðar sem nú eru í heildarverkaskrá Ásgerðarsafns er ekki vitað um eigendur 36 verka. Þar með er heldur ekki vitað hvort verkin séu enn til eða hvort þau séu glötuð. Sum þessara verka eru til á mynd, önnur eru einungis þekkt út frá titli og/eða vinnuteikningum
Viljugir mega mjög gjarnan taka þátt í leitinni:
1. Farið inn á flipann Listaverk
2. Sláið inn leitarorðinu „óþekkt“
3. Þá koma þessi 36 verk upp á skjáinn
4. Skoðið nánar einhver eða öll verkin. Ég hef reynt að setja inn allar þær upplýsingar sem ég hef.
5. Svo er bara að gramsa og grúska, spyrjast fyrir osfr.
6. Ef eitthvað kemur upp úr krafsinu, hve lítið sem það er, eða ef þið hafið spurningar, endilega hafið samband gegnum info@asgerðarsafn.is
Myndin sýnir eina af vinnuteikningum Ásgerðar af verkinu Andromeda (ÁB141) sem hún óf 1988 eftir pöntun fyrir enska fjármálafyrirtækið Sleipnir UK, Ltd. Verkið er í tveimur hlutum, 216 + 91 cm að lengd, og því eitt af hennar stærri verkum. Engar ljósmyndir eða upplýsingar um núverandi eigendur hafa fundist þrátt fyrir töluverða leit.