SAFNSPJALL Í VÍÐSJÁ RÚV RÁS 1

22. maí 2025

Víðsjá 22.05.2025: https://www.ruv.is/utvarp/spila/vidsja/23618/b725js

Kynning Víðsjár á viðtalinu um Ásgerðarsafn:
„Ásgerður Búadóttir var frumkvöðull í listvefnaði á Íslandi og telst meðal fremstu myndlistarmanna þjóðarinnar. Í síðustu viku opnaði glænýtt safn tileinkað Ásgerði og ævistarfi hennar á veraldarvefnum, á slóðinni asgerdarsafn.is. Umsjónarmaður safnsins og sonur Ásgerðar, Björn Þrándur Björnsson, segir okkur nánar af safninu og vinnunni að baki í þætti dagsins“.

Það var mjög ánægjulegt að fá að ræða við Melkorku Ólafsdóttur í Víðsjá og segja frá ýmsu tengdu Ásgerðarsafni, eins og kveikjunni að verkefninu, rannsóknarvinnunni, hugbúnaðarþróunni, og vefsíðunni. Einnig stikluðum við aðeins á ferli Ásgerðar sem myndlistarmanns, sérstaklega upphafsárunum.

Ég þakka Mekorku Ólafsdóttur aftur fyrir mig og einnig kollega hennar, Höllu Harðardóttur, sem var hvatamaðurinn að viðtalinu.