Meginvinnan við uppbyggingu heildarverkaskrár (catalogue raisonné) Ásgerðar hefur verið að komast að því hve mörg verk liggja eftir hana og hvar þau eru niður komin.
Upplýsingar úr minnisbókum Ásgerðar um sölu verka, ásamt umfangsmiklu safni hennar af ljósmyndum og sýningarskrám, sýna að eftir hana liggja amk 203 ofin verk, stór og smá.
Af þeim eru 35 enn ófundin. 22 þeirra eru til á ljósmynd eða vinnuteikningu, en 13 önnur einungis þekkt minnispunktum eða sýningarskrám.
Af þessum minnst þekktu 13 verkum, eru heil 7 frá upphafsárum ferils hennar og sem hún sýndi á fyrstu einkasýningu sinni á heimili okkar á Karfavogi 22, haustið 1962 (sjá SÝN014). Það er því eftir miklu að slægjast að finna meiri upplýsingar um þessa sýningu, ekki minnst ljósmyndir.
Á vélritaðri verðskrá er að finna nokkrar vísbendingar sem gætu hjálpað við leitina:
Við ÁB031 er nafnið „Erna“ skrifað.
Vitað er að ÁB034 var selt á uppboði hjá Gallerí Borg 1993, en kaupandinn seldi það aftur hjá Gallerí Fold líklegast um 1998, en ekki er vitað um kaupanda.
Við ÁB036 er nafnið „Kjartan“ skrifað.
Við ÁB037 er skrifað „Anna (Réttarholtsskóli)“.
Við ÁB038 er skrifað „Ingibjörg Ólafsdóttir, Hjúkrunarskóli Íslands“ ásamt nafni verksins „Lauf“. Kona að nafni Ingibjörg Ólafsdóttir (d 2007) var í stjórn Hjúkrunarskóla Íslands, en óvíst hvor hún hafi keypt verkið fyrir sig eða fyrir skólann.
Við íhugun og eftirgrennslan má hafa í huga að sýningin var haldin í heimahúsi í vogahvefinu af tiltölulega lítt þekktum myndlistarmanni. Sýningargestir og kaupendur eru þá oft sem ekki vinir, kunningjar, kollegar í listinni, og ekki síst nágrannar. Hvaða Erna, Kjartan, Anna og Ingibjörg bjuggu í voga/heima-hverfinu og gætu hafa keypt þessi verk? Líklega fólk í foreldrakynsóð ykkar sem þetta lesið!
Myndin sýnir þekkt og óþekkt verk á Karfavogssýningunni 1962