Árið 1991 óf Ásgerður verkið Eldlandið fyrir Iðnlánasjóð eða Iðnþróunarsjóð. Hún virðist ekki hafa verið alveg viss, en það skiptir ekki höfuðmáli, því báðir sjóðirnir runnu inn í „Fjárfestingabanka arvinnulífsins“, sem var stofnaður 1998. Sá banki var síðan sameinaður Íslandsbanka árið 2000.
Ef Eldlandið hefur fylgt öllum þessum fjármálafléttum, þá ætti það sem sagt núna að vera í eigu Íslandsbanks, en svo virðist því miður ekki vera. Því er enn leitað að þessu verki. Myndin er úr myndasafni Ásgerðar, og ég myndi halda að hún hafi verið tekin fjlótlega eftir að verkið var sett upp hjá upprunalegum eigendum, en ég veit það ekki. Veit einhver ykkar hvar myndin var tekin? Hafið samband í gegnum info@asgerdarsafn.is