Þetta var 9. einkasýning Ásgerðar, þar sem hún sýndi 10 nýleg verk, ofin á árunum 1989-1992. Eiríkur Þorláksson skrifað mjög lofsamlegan dóm um sýninguna. Að niðurlagi skrifar hann „Ljóst er að listakonan heldur hér áfram á þeirri braut sem hún hefur markað sér fyrir margt löngu, að vinna vandlega úr sjónhrifum sínum, byggja verk sín upp af samviskusemi og setja þau fram á þann hátt að listunnendur eigi greiðan aðgang til að njóta þeirra. Megi sem flestir listamenn vinna á þeim nótum um ókomna framtíð“. Einnig má nefna að í sambandi við sýninguna átti Súsanna Svavarsdóttir áhugavert viðtal við Ásgerði (UMF0524) undir titlinum „Þitt land – þín jörð“, þar sem Ásgerður lýsir vel hvernig íslensk náttúra veitir henni þann innblástur sem hún reynir að fanga í list sinni.