Þetta er í annað sinn sem AIC velur verk Ásgerðar, Orion, á yfirlitssýningu um nútíða textíllist í eigu safnsins. Verk Ásgerðar var gefið AIC árið 1996 af hinni þekktu bandarísku textíllistakonu Nancy Hemenway Whitten Barton og eiginmanni hennar, Robert D Barton. Þau höfðu stofnað „The Textile Arts Foundation“ á ofanverðum áttunda ártugnum, keypt alþjóðlegan listvefnað og sýnt í Bandaríkjunum, meðal annars tvö verk Ásgerðar. Þegar þau lögðu niður stofnunina gáfu þau verkin ýmsum listasöfnum, og Orion var gefið AIC.
Contemporary Fiber Art, A Selection from the Permanent Collection
Veist þú meira um þessa sýningu?