Samkvæmt fréttatilkynningu „Í i8 Gallery eru nú til sýnis 44 listaverk eftir 33 listamenn. Um er að ræða bæði ný verk og eldri. Opið er 12-17 miðvikudag – laugardags. Meðal listamanna sem eiga verk á sýningunni eru Ásgerður Búadóttir, Birgir Andrésson, Eggert Pétursson, Karin Sander, Kristján Guðmundsson, Margrét Blöndal, Ólafur Elíasson, Ragna Róbertsdóttir, Ragnar Kjartansson og Sigurður Guðmundsson. Það er því sönn listaveisla í Tryggvagötunni. Sýningin stendur til 23. desember“. Verk Ásgerðar á sýningunni var lítið strangflatarverk Án titils frá 1961.

Sjóndeildarhringur

SÝN122
2020
12/12 – 23/12
i8 Gallerí
Sölusýning

Veist þú meira um þessa sýningu?