Í fréttatilkynningu má lesa seftirfarandi“ Sýningin Náttúruafl hefur verið opnuð í Listasafni Reykjanesbæjar. Náttúra Íslands hefur verið viðfangsefni margra listamanna í íslenskri myndlist á 20. öld. Hún hefur verið uppspretta mismunandi tjáningarforms innan myndlistarinnar og hefur átt ríkan þátt í að skapa viss einkenni innan íslenskrar listasögu. Á sýningunni getur að líta marga ólíka tjáningarmiðla, málverk og skúlptúra, vefnað og grafíkmyndir eftir íslenskar konur, þær Ásgerði Búadóttur, Brynhildi Þorgeirsdóttur, Guðmundu Andrésdóttur, Hafdísi Ólafsdóttur, Hildi Hákonardóttur, Júlíönu Sveinsdóttur, Nínu Tryggvadóttur, Ragnheiði Jónsdóttur Ream, Sigrid Valtingojer, Valgerði Hauksdóttur og Þorbjörgu Höskuldsdóttur. Verkin á sýningunni eru öll unnin á seinni hluta 20. aldar og er ætlunin með þessari sýningu að miðla náttúruhrifum og kröftum íslenskrar náttúru. Verkin eru í eigu Listasafns Íslands og sýningarstjóri er Harpa Þórsdóttir“.Ljósmyndir frá sýningunni eru vel þegnar.

Náttúruafl: 11 listakonur

SÝN105
2006
10/3 – 23/4
Listasafn Reykjanesbæjar
Safneign

Veist þú meira um þessa sýningu?