Í janúar 1993 birtist frétt í Mbl um þessa fyrirhuguðu sýningu (UMF0534) undir fyrirsögninni “Verk Leifs og Ásgerðar á einni stærstu listsýningu í Asíu”. Þar segir m.a. „Fyrir milligöngu Búnaðarbanka Íslands hefur verið ákveðið að bjóða tveimur íslenskum listamönnum að taka þátt í þessari alþjóðlegu sýningu. Og bankinn valdi þau Ásgerði Búadóttur, vefnaðarlistakonu og Leif Breiðfjörð, glerlistamann til að sýna þar verk sín“. Það er ýmislegt illskiljanlegt við þessa frétt. Í fyrsta lagi það að Búnaðarbankanum hafi verið falið að velja íslenska þátttakendur á alþjóðlega listsýningu. Í öðru lagi að hvorki í gögnum Ásgerðar eða Leifs er nokkuð sem bendir til að þeim hafi verið boðin þátttaka, eða þau tekið þátt. Í þriðja lagi, eftir mikla eftirgrennslan hefur komið fram að vissulega hafi mjög umfangsmikil alþjóðleg listsýning var haldin á Taipei Fine Arts Museum, Taipei, Taiwan á þeim tíma sem nefndur er, og gefin var út nær 400 síðna bók í því tilefni. Af bókinni er nokkuð ljóst að engin íslensk verk eða þátttakendur hafi verið á sýningunni. Það væri mjög forvitnilegt að heyra í einhverjum þeim sem gætu varpað ljósi á þessa sýningu sem aldrei varð – fyrir íslenku „þátttakendurna“.
Taipei International Exhibition of Traditional Arts & Crafts
Veist þú meira um þessa sýningu?