Listfræðingurinn Hannes Sigurðsson var hugmyndasmiður og umsjónarmaður verkefnisins. Í DV var sagt frá þessum myndlistargjörningi á eftirfarandi hátt „Skemmtilegt verkefni er í gangi á hinu vinsæla kaffihúsi Mokkakaífi, þeim veitingastað sem flestir listamenn hafa sopið á kaffi í áratugi. Á Mokka er veriö að mála íslenska myndlistarrefilinn. Daglega koma myndlistarmenn, einn á dag, og mála sinn skammt á refilinn og hefur svo verið síðan 26. október og mun verkinu ekki ljúka fyrr en 7. desember. Íslenski myndlistarrefilinn er tæplega sextán metra langur og fimmtíu sentímetra breiður segldúkur sem strengdur er eftir endilöngum veggjum Mokkakaffis og í heild verða það þrjátíu og fimm myndlistarmenn sem leggja vinnu í að fullgera myndlistarrefil þennan. Þegar ljósmyndara DV bar að garði í gærdag var myndlistarkonan Rúrí að mála sinn skammt og tók hún við af Ásgerði Búadóttur“. Það væri fróðlegt að vita hvar Íslenski myndlistarrefillinn er niðurkominn.