Félagið Íslenzk listiðn var stofnað í febrúar 1955 undir formennsku Lúðvígs Guðmundssonar. Eitt af megin markmiðum félagsins var að kynna íslenskan listiðnað hérlendis og erlendis. Eitt af fyrstu verkefnum félagsins á þessu sviði var að velja og senda verk á hina stóru alþjóðlegu listiðnaðarsýningu sem haldin var í München á hverju ári. Meðal annars var ákveðið að senda tvo myndvefnaði eftir Ásgerði á sýninguna, verkin Stúlka með fugl (ÁB005 og ÁB006), sem hún hafði ofið 1952. Í viðtali við Elínu Pálmadóttur í tímaritinu Vikunni (UMF0033) skömmu eftir að Ásgerður hafði unnið til gullverðlauna fyrir þessi verk á sýningunni vill hún gera sem minnst úr þessu og sagði meðal annars „Mér finnast teppin sem ég sendi á sýninguna í rauninni of gömul. Það eru þrjú eða fjögur ár síðan að ég óf þau. Maður vex óhjákvæmilega frá sínum fyrri tjáningarformum”. Verðlaunin vekja mikla athygli hérlendis eins og sjá má af umfjöllun, sem gera hana á augabragði nokkuð þekkta sem listvefara og myndlistarmann. Leitað er ljósmynda frá sýningunni.
8. Deutsche Handwerks Messe
Veist þú meira um þessa sýningu?