Um vefinn
Vefsíðan Ásgerðarsafn.is (og asgerdarsafn.is) er langtímaverkefni sem hefur að markmiði að vera uppfæranleg heildarverkaskrá (catalogue raisonné, sjá nánar neðar) yfir ofin listaverk Ásgerðar Búadóttur. Samtímis veitir síðan almennan aðgang að „listasafni“ sem gefur viðamikla sýn yfir list og feril Ásgerðar.
Verkefnisstjóri og útgefandi vefsíðunnar er Björn Þrándur Björnsson. Í fagráði verkefnisins sitja Aldís Arnardóttir listfræðingur, Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur og Ingvar Víkingsson grafískur hönnuður.
Allar upplýsingar, myndefni og umfjöllun um verk, sýningar og annað sem tengist ferli Ásgerðar er vistað í Claris FileMaker gagnagrunni. Vefsíðan (WordPress) er tengd gagnagrunninum með valkvæðum hætti, þannig að hægt er að stjórna hvaða efni úr gagnagrunninum birtist á vefsíðunni. Hugbúnaðarþróun gagnagrunnsins (FileMaker) og tengdrar vefsíðu (WordPress) hefur verið unnin af fyrirtækinu Fislausnir ehf; Kolbeinn Reginsson, Sigurður Finnsson.
Styrktaraðilar verkefnisins hingað til eru Myndlistarsjóður (2022), Myndstef (2022, 2025) og Menningarsjóður Seðlabanka Íslands tengdur nafni Jóhannesar Nordal (2023).
© Ásgerðarsafn, höfundar texta, ljósmyndarar, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, handhafar höfundaréttar og Myndstef. Ekki má á neinn hátt afrita myndir og texta vefsins án leyfis útgefanda og höfundarréttarhafa.
Fjölda ljósmynda er að finna á vefnum, og er stærstur hluti þeirra úr myndasafni Ásgerðar. Nokkrir atvinnuljósmyndarar komu að myndatökum af henni og verkum hennar, m.a. Kristján Pétur Guðnason, Einar Falur Ingólfsson, Viktor Smári Sæmundsson, Mats Wibe Lund og Vladimir Sichov. Hins vegar er sjaldnast vitað hver þeirra hefur tekið hvaða myndir. Ingvar Vikingsson hefur komið að myndvinnslu fyrir bókina Veftir og litaleiðrétt innskannaðar litskuggamyndir, sem hafa verið teknar með litaskala. Einnig hefur Páll Kjartansson séð um myndvinnslu mynda Kristjáns Péturs Guðnasonar.
Dagblaðaljósmyndir koma einkum frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Ljósmyndasafni Íslands, og eru ljósmyndarar m.a. Andrés Kolbeinsson, Ari (hjá Tímanum), Árni Bjarnason, Árni Sæberg, Bjarnleifur J Bjarnleifsson, Einar Karlsson, Emil Þór Sigurðsson, Gunnar S (hjá Tímanum), Gunnar V Andrésson, Jens Alexandersson, Leifur Þorsteinsson, Ólafur K Magnússon, Páll Kristjánsson, Róbert Ágústsson, Sverrir (hjá Tímanum).
Netfang vefsins er info@asgerdarsafn.is. Hafið gjarnan samband ef þið eruð með upplýsingar eða spurningar.
Um catalogue raisonné
Catalogue raisonné er alþjóðlegt nafn yfir heildarverkaskrá listamanns. Tilgangur slíkrar skrár er að veita almenningi og fræðasamfélaginu heildarmynd af list og ferli listamannsins með því að safna á einn stað öllum þekktum upplýsingum í máli og myndum. Með því að birta catalogue raisonné á netinu er ekki einungis verið að gera upplýsingarnar aðgengilegar, heldur er einnig hægt að óska eftir og bæta við upplýsingum. Til dæmis tekur eigendasaga verkanna stöðugum breytingum og upplýsingar um eigendaskipti eru vel þegnar.




