Þetta verk var í dánarbúi Asgerðar, þá ófrágengið að hluta og hafði aldrei verið sýnt. Ástæða þess er óljós. Út frá stærð, litavali og myndbyggingu er líklegast að verkið hafi verið ofið um miðjan áttunda áratuginn. Komið hafa fram hugmyndir um að þetta væri eitt af síðustu verkum Ásgerðar, en í lok ferilsins, 1995-2000, óf hún eingöngu lítil og meðastór verk og vann með fernings- og skálínumunstur, frekar en þær bogadregnu línur sem eru ráðandi í þessu verki.
Án titils (ófrágengið)
Veist þú meira um þetta verk?