Eftir 8 ára sýningardvala ákvað FÍM að efna til samsýningar með þemanu „Óðurinn til sauðkindarinnar“ og stærðartakmörkun verkanna við 20×20 cm eða 20x20x20 cm ef um þrívíð verk var að ræða. Á sýningunni voru tæplega 200 örverk eftir 42 félagsmenn og 6 gesti frá Nýlistasafninu. Ásgerður var með fjögur verk á sýningunni. Ólafur Gíslason fjallaði um sýninguna (UMF0582 og skrifaði m.a. „Einnig kunni ég að meta verk Guðbjargar Lindar Jónsdóttur, sem opna ferska sýn á viðfang sitt, og verk Hreins Friðfinnssonar sem virka sterk í einfaldleik sínum. „Minningakubbar“ Guðrúnar Kristjánsdóttur kveikja líka í ímyndunaraflinu og formrænar úrlausnir Valgarðs Gunnarssonar, Söru Vilbergsdóttur og Ásgerðar Búadóttur era vel útfærðar“. Óskað er eftir ljósmyndum frá sýningunni.