Nýstofnað Listráð Langholtskirkju stóð fyrir þessari „Listafléttu“, þar sem fléttað var saman bókmenntum, þar sem Thor Vilhjálmsson las úr verkum sýnum, barokktónlist, og myndlist, þar sem Ásgerður og Kristján Davíðsson sýndu nokkur verka sinna – „fimm ný olíumálverk eftir Kristján og þrjú ofin myndverk eftir Ásgerði; nokkuð blönduð í tíma“ (UMF0632). Á fréttamynd sést verk Ásgerðar, Kyrrð, en ekki er vitað hvaða önnur tvö verk hún sýndi.