Sýningin var kynnt á vefsíðu safnsins „Efnt er til hennar í tilefni 40 ára afmælis Listasafns Háskóla Íslands en markmið sýningarinnar er að gefa nemendum háskólans, starfsmönnum og ekki síst öllum almenningi færi á að kynnast safneigninni. Sýningarstjórar eru Kristján Steingrímur Jónsson, forstöðumaður Listasafns Háskóla Íslands, og Æsa Sigurjónsdóttir, listfræðingur og dósent við Háskóla Íslands. Sýningin er í fimm byggingum skólans: Aðalbyggingu, Gimli, Háskólatorgi, Odda, Veröld, og tengigöngum á milli þessara bygginga. Sýnd eru um 170 verk úr safneign eftir 50 listamenn. • Listaverkin er frá ýmsum tímabilum íslenskrar myndlistar og endurspegla ólík viðfangsefni listamanna. • Í Odda er yfirlitssýning á verkum Guðmundu Andrésdóttur. Á Háskólatorgi eru sýnd verk eftir Gunnlaug Scheving sem upphaflega voru gerð fyrir Kennaraháskóla Íslands í Stakkahlíð. • Í Veröld er sýning á abstraktverkum Þorvaldar Skúlasonar, en safnið varðveitir rúmlega þúsund málverk og teikningar listamannsins. Í Aðalbyggingu eru litaskissur Valtýs Péturssonar og málverk eftir Eyborgu Guðmundsdóttur auk verka eftir Önnu Líndal, Birgi Snæbjörn, Georg Guðna, Eirúnu Sigurðardóttur, Eggert Pétursson, Ragnar Kjartansson og Svölu Sigurleifsdóttur. Í tengigöngum má sjá úrval verka eftir listamenn af „SÚM-kynslóðinni“ auk ljósmynda, málverka og textílverka eftir Ásgerði Búadóttur, Elínu Hansdóttur, Erlu Þórarinsdóttur, Gabríelu Friðriksdóttur, Hildi Bjarnadóttur, Huldu Hákon, Huldu Stefánsdóttur, Hörpu Árnadóttur, Kristínu frá Munkaþverá og Ólöfu Nordal“. Því miður eru engar myndir frá sýningunni aðgengilegar.
List-míla 40 ára afmælissýning
Veist þú meira um þessa sýningu?