Í fréttatilkynningur er gerð eftirfarandi grein fyrir sýningunni „Á sýningunni eru leiddar saman tvær kynslóðir íslenskra listamanna, annars vegar listamenn sem komnir eru yfir sextugt og hins vegar ungt fólk, þrítugt og yngra. I fyrrnefnda hópnum eru þekktir listamenn sem enn vinna af fullum krafti við frjóa listsköpun: Ásgerður Búadóttir, Erró, Guðmunda Andrésdóttir, Jóhann Eyfells, Kristján Davíðsson og Magnús Pálsson. Í hinum hópnum eru ungir og efnilegir listamenn sem mikils er vænst af: Ari Alexander Ergis Magnússon, Ásmundur Ásmundsson, Egill Snæbjörnsson, Erling Þ.V. Klingenberg, Gabríela K. Friðriksdóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Helgi Hjaltalín Eyjólfsson, Hlín Gylfadóttir, Hlynur Hallsson, Hrafnhildur Arnardóttir, Hreinn Stephensen, Margrét Blöndal, Nína Magnúsdóttir, Særún Stefánsdóttir, Valgerður Guðlaugsdóttir, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Þóroddur Bjarnason og Gjörningaklúbburinn (Dóra, Elrún Sigurðardóttir, Jóní Jónsdóttir og Sigrún Hrólfsdóttir). Sýningin vekur spurningar um tengsl milli þessara kynslóða, hvort aldur skipti máli, hvort og hversu samfelldan þráð listasagan myndi“.